Gistingin
Eldhúsið
Sturtan
Kæligeymslan
Útihúsin
Tjaldsvæðið
 

 

Aðstaðan í Hornbjargsvita

  Þar er gistiaðstaða fyrir allt að 50 manns.

  Þar er gott eldhús með öllum búnaði, þar eru rafmagns og gaseldavélar.

  Þú tekur með þér hráefni í matargerð, annað er á staðnum.

  Við höfum gott kolaútigrill, þú hefur með þér kol.

  Það er sofið í rúmum og kojum í 7 aðskildum herbergjum, þú hefur með þér svefnpoka eða rúmföt.

  Það er sturta í húsinu sem tekur við 100 kr. mynt.

  Góð aðstaða er í húsinu til að þurka blaut föt og skó.

  Einnig bjóðum við upp tjaldsvæði með aðgang að vatnssalernum, góðu vatni og inniaðstöðu í gömlu útihúsi.

------------------------------------------------------------------

Farangur  og sorp

  Gestir sem koma í Hornbjargsvita eru beðnir um að takmarka farangur eins og kostur er. Allan farangur þurfa gestir sjálfir að bera með sér og taka úr bát í hús. Það þarf ekki að koma með nein mataráhöld né húsgögn!

  Erfitt getur verið að ferja mikinn farangur milli báta og okkar reynsla er sú, að fólk tekur allt of mikið dót með sér. Þannig er það góð regla að taka allt það sem þú heldur að þú getur ekki verið án, og pakka því niður. Síðan skalt þú skoða umfangið, taka allt upp úr töskunni aftur og íhuga hvort þú þurfir þrennar buxur og fjórar peysur fyrir 3 nætur? Ef þú kemur ekki fötunum þínum fyrir í meðalstórri eða lítilli íþróttatösku, ertu með allt of mikið. Ferðatöskur eru ótrúlega erfiðar, þær eru allt of stórar og þungar, íþróttatöskur eru mun heppilegri.

  Glerflöskur eru þungar og erfitt fyrir ykkur að bera, þannig að skynsamlegt er að setja innihaldið á plastflöskur. Þegar tekin saman er matur fyrir t.d. 3 nátta ferð, er gott að setjast niður og skrifa niður hve mikið ein persóna borðar á dag, skipuleggja matseðil. Þetta er ótrúlega auðvelt og ólíkt gáfulegra en að reyna að skipuleggja hvað á að borða, þegar þú stendur inni í matvöruversluninni! 

  Ef þið eruð með kælibox eða plastkassa, munið að setja límband vel utan um þá, algengt er að matur fari í sjóinn þegar þeir opnast, en læsingar á þeim eru mjög lélegar.  Fötum sem þú vilt halda þurrum er gott að setja í plastpoka.

  Samkvæmt reglum friðlandsins, eiga allir að taka sitt sorp til baka! Þetta er gott að hafa í huga þegar pakkað er, við urðum þó allan lífrænan úrgang. Frauðplastkassa verður fólk að taka með sér til baka úr friðlandinu.